Vorútskrift Borgarholtsskóla 2015
Eins og oft áður átti afreksíþróttasviðið glæsilega fulltrúa á útskrift Borgarholtsskóla í gær. Útskriftin var haldin hátíðlega í gær (laugardaginn 23. maí) fyrir fullum sal. Í ár útskrifuðust 7 nemendur af afreksíþróttasviðinu, 2 úr körfbolta, einn úr fótbolta og 4 úr handbolta. Handboltastrákarnir eru einmitt úr fyrsta handboltaárganginum sem byrjaði við skólann. Þeir eru því frumkvöðlarnir sem byggðu upp handboltann og eiga stóran þátt í því að í dag eru 24 nemendur þar skráðir og fleiri á leiðinni, farið hefur verið í 2 utanlandsferðir og 6 nemendur þaðan hafa fengið landsliðsstyrki fyrir þátttöku sína í verkefnum með landsliðum, af 18 sem fengu styrk á þessu skólaári (samtals 450.000 kr.).
Þeir nemendur sem fara alla leið hjá okkur eru sérstaklega mikilvægir því þeir gegna miklu fyrirmyndarhlutverki gagnvart þeim sem koma inn nýir á hverju ári. Og þessir drengir hafa svo sannarlega staðið sig þar.

Ferðasaga #3
Dagur 5
Fengum að sofa aðeins lengur en venjulega og mættum kl. 09:00 í morgunmat. Eftir það var mæting niður í lobby kl. 11:00 og þaðan fórum við á styrktaræfingu í Schalbe Arena frá 11:30-13:00. Þar var tekið verulega á því: upphífingar – glútæfingar – snerpuhopp – kaðlaæfingar – köst með medicine-bolta og 20m sprettir m/30-40kg í afturdragi svo eitthvað sé nefnt. Held að öllum fannst kaðlaæfingarnar langerfiðastar. Eftir æfinguna var farið heim uppí hótel, í sturtu og hádegismat. Flest allir fóru saman á City Grill, sem við köllum yfirleitt “Kebob”, sem seldi pizzur og auðvitað kebab vefjur. Eftir matinn var um það bil klukkutími í næstu æfingu þannig fólk keypti sér vatn og nesti fyrir hana og slökuðu á þar til 16:30. Á þeim tíma var mæting niður í lobby og svo röltuðum við síðan aftur í höllina og biðum eftir Gunnari Steini sem opnaði fyrir okkur. Æfingin hófst 17:00 og var til 18:00. Á æfingu var farið yfir sóknarleik og varnarleik fyrir leikinn á móti Gummersbach-akademíunni á morgun. Sóknakerfin sem við æfðum voru Barca, Køben, Cairo og Strasbourg. Við ætlum okkur að spila annaðhvort 6-0 vörn með aggressíva tvista/bakverði eða 3-2-1 vörn sem fer eftir því hvernig leikurinn mun þróast. Eftir æfinguna var farið upp á hótel og tekið létt chill þar sem ákveðið var hvað ætti að borða. Allir ætluðu að fara saman á veitingastaðinn niðri á hótelinu en það sem þurfti að panta borðið fyrirfram fyrir stóra hópa þá fóru flestallir í bæinn en Logi og Donni fóru á rómantískt deit á veitingastað hótelsins. Hinir fóru á einhvern ljúffengan pizzustað og fengu sér rjúkandi heitar flatbökur. Eftir mat var farið uppí herbergin og þar spjölluðum við tímunum saman en þó var farið snemma að sofa enda leikur næsta dag.
Dagur 6
Gameday! Fórum í morgunmat kl. 09:00 og gerðum okkur klár fyrir stuttan taktískan fund kl. 11:00. Þar var farið yfir varnarskipulagið og sóknakerfin sem Sveinn hafði tekið upp á myndband á æfingunni deginum áður. Eftir það var mæting niður í lobby kl. 11:30 og gerðum okkur klár fyrir teygju/styrktaræfingu í Schalbe Arena. Æfingin hófst kl. 12:00 og stjórnaði styrktarþjálfari Gummersbach-liðsins hana og var hún krefjandi á alla vegu. Einblínt var á að liðka líkaman til fyrir leikinn um kvöldið en jafnframt verið að styrkja miðju/kjarna líkamans eða “core”-ið. Æfingar á borð við plankar og hliðarplankar með skemmtilegum tvisti og fjölbreyttar æfingar með medicine-bolta einkenndu æfinguna og því var tekið vel á því. Eftir æfingu var farið upp í hótel og beint í sturtu. Eftir það var frjáls tími fram að mætingu fyrir leik sem var kl. 18:00. Margir nýttu sér tíman og versluðu inn á meðan aðrir hvíldu sig vel fyrir leikinn. Auðvitað fengu allir sér góða næringu fyrir leik og allir mættir á réttum tíma upp á hótel. Þaðan var farið aftur í Schalbe Arena og þar hófst venjulegur undirbúningur fyrir leik eins og að spila háværa þýska teknó-tónlist inni í klefa. Klukkutíma síðar hófst leikurinn. Leikurinn var í járnum nær allan tíman og spiluðu bæði lið flottan varnarleik. Gummersbach leikmennirnir voru samt einu skrefi á undan okkur og breikkuðu bilið á milli okkar jafnt og þétt. Staðan í hálfleik 15-9. Seinni hálfleikurinn var jafn skemmtilegur og sá fyrri og voru bæði lið staðráðin í að vinna. Baldur var logandi í markinu og varði hvert dauðafærið á fætur öðru og einnig hraðaupphlaupi. Berglind kom sterk inn í leikinn og skoraði 4 mörk og var ein af markahæstu mönnum leiksins. Heilt yfir spiluðu allir flottan leik og gátum við borið höfuðið hátt þrátt fyrir 10 marka tapi 31:21. Ekki slæmt miðað við að hafa bara tekið eina æfingu áður til að spila okkur saman og það degi fyrir leik. Eftir leik var klukkan orðin mjög margt þannig að nokkrir drifu sig í sturtu inni í klefa á meðan aðrir slepptu sturtunni alveg og drifu sig að finna stað til að borða á. Margir fóru á “Kebob” en aðrir héldu að allir veitingastaðir væru lokaðir, enda klukkan orðin vel yfir tíu, og fóru þeir í Asíu-búðina rétt hjá hótelinu og reyndu að finna næringu við hæfi. Brauð, súkkulaðikrem, pringles-snakk, haribo-nammipokar, gos, súkkulaði-kex, súkkulaði-stangir og margt fleira í þessum dúr var borið út úr Asíu-búðinni í þremur stórum innkaupapokum. Eftir mishollum kvöldmat var chillað saman langt fram á nótt og var meðal annars horft á Monsters University teiknimyndina góðu í herbergi 103.
Dagur 7
Í dag var kominn tími á að fara heim til Íslands þannig allir voru búnir að pakka og tilbúnir í flug.
Við vöknuðum fyrir níuleytið og fengum okkur seinasta morgunverðinn á hótelinu, náðum svo í töskurnar okkar og fermuðum
mini-rútuna sem keyrði okkur til Düsseldorf. Við skrifuðum líka öll þakkarbréf fyrir ferðina handa Gunnari Stein, sem var reyndar farinn þegar Sveinn ætlaði að afhenda honum það þannig við sendum honum það í pósti á flugvellinum. Eftir langa keyrslu á flugvöllinn vorum við komin þangað um hádegi, og þá voru um 6 tímar í flugið okkar. Við ákváðum þá að láta geyma ferðatöskurnar okkar hjá ferðatöskugeymslu einni og fara með lest sem hengur í loftinu, eða svokölluð “Skytrain”, og svo venjulega lest inn í miðbæinn á Dusseldorf og þar svo að versla og skoða okkur um. Þar löbbuðum við öll niður göturnar, sumir fengu sér að borða, aðrir fóru og versluðu í búðunum og aðrir hins vegar bara skoðuðu sig um. Um klukkan korter í 6 var ákveðið að hittast við lestarstöðina og fara aftur á flugvöllinn, en þar sem allir voru nú þegar komnir á stöðina fórum við bara fyrr af stað. Við byrjuðum lestarferðina á flugvöllinn með því að fara í öfuga átt, en sem betur fer áttuðum við okkur á því og hoppuðum af á næstu stöð og skiptum um lest. Þegar við komum á flugvöllinn fórum við að ná í töskurnar aftur og fengum okkur svo að borða fyrir flugið. Við fórum svo að checka okkur inn og láta leita á okkur og sjá hvort við værum eitthvað hættulegt á okkur. Logi og Alli þurftu að láta taka dótið sitt og sjá hvort einhver ólögleg efni voru þar, en sem betur fer voru engin. Um tíuleytið á þýskum tíma var flug heim og allir voru tilbúnir í flugið heim. Þriggja tíma flugið leið eins og við höfðum bara flogið í 15 mínútur og allir skemmtu sér konunglega að tala saman og skemmta sér. Klukkan 11 á íslenskum tíma vorum við lent og var smá verslað líka í fríhöfninni. Allir voru komnir inn í rútu klukkan 11:50 og við keyrðum í átt að borgarholtsskóla. Allir voru mjög glaðir með ferðina og ég held að við tölum fyrir alla þegar við segjum að við höfum verið heiðraðir með að fá þetta tækifæri að fara með svona rosalega skemmtilegum krökkum í topp 1 besta sem við höfum a.m.k farið í. Við viljum bara þakka fyrir okkur krakkana að fá að fara í þessa vel heppnuðu ferð og hún hefði ekki getað gengið betur upp.
Takk fyrir okkur.
Dagbók frá degi 3 og 4
Dagur 3 byrjaði með morgunmat klukkan 08:00. Eftir það var frjáls tími til 12:00 þar sem það var skýjað. Nokkrir skelltu sér í bæinn en aðrir voru eftir upp á hóteli. Við mættum Gunnar Steini niðri í bæ og hann var hress eins og alltaf. Klukkan 12 löbbuðum við öll á eitthvern stað í hádegismat. Kál í karrý, pylsur og frankar, fiskur með spínatmauki. Eftir matinn tókum við strætó að vatninu þar sem við tókum skógarhlaup en aðrir lágu í sólinni enda var mjög gott veður. Planið var að skokka sirka 4 km en sumir enduðu á því að skokka 11 km. Flestir þeir sem ætluðu að skokka hringinn villtust á leiðinni og voru hræddir um að finnast ekki aftur í um það bil tvo daga. Eftir einn og hálfan tíma komu seinustu mennirnir í mark og voru feykiánægðir með það. Flestir skelltu sér í vatnið og tóku nokkra sundspretti. Bergur veiddi dauðann fisk. Þegar allir voru komnir löbbuðum við upp að strætóskýli en rétt misstum af honum svo við láum á gangstéttinni í sólbaði og blöstuðum tónlist. Í strætó ákváðu sumir að fara á Burger King en aðrir fóru á Kebab. Klukkan 18:30 röltuðum við á leikinn. Svenni fór að redda miðunum. Það var allt troðið af fólki og mikill spenningur í hópnum. Við sátum þar sem aðal stuðningslið Gummerbach var. Þetta var mjög flottur leikur hjá báðum liðum. Þessi leikur var ótrúleg upplifun og flest allir voru hásir eftir hann. Að leik loknum fengum við að fara á völlinn og tala við leikmennina og fá myndir með þeim. Alli sjallaði við Santos. Eftir það var kvöldvaka í herbergi 106.
Á degi 4 var vaknað og farið í morgunmat, eftir það löbbuðu við á lestar stöðina til að fara til Kölne sem tók ein og hálfan tíma. Þegar við vorum komin tókum við myndir af Dómskirjunni og löbbuðum yfir brú með fullt af ástarlásum. Til að byrja verslunarleiðangurinn fóru allir á mc donalds þar sem flestir voru svangir. Í bænum var mikið líf og næstum troðið allstaðar þar sem útsölur voru í gangi. Flestir byrjuðu í H&M en eftir það splitupust allir upp. Berglind og Logi tóku þátt í skemmtilegri keppni í eini íþróttar búðinni þar sem þau þurfti að fara í snerpustiga og taka þrjár burdbis og fara aftur í gegn um stigan og taka þrjár burdbis allt á tíma. Auðvitað kláruðu þau keppnina með stæl og lentu þau í sæti.(Logi 3 sæti karla megin og Berglind í 1 sæti kvenna megin). Þegar klukkan var orðinn 18:30 hittumst við og ætluðum á Hard rock en því miður komumst við ekki þangað útaf því það var allt fullt þannig við fórum og fengum okkur dýrindis pizzu á Pizza Hut. Eftir að allir voru búnir að borða löbbuðum við upp á lestar stöð og fórum til baka með lestinni. Við vorum komin upp á hótel klukkan 23:00. Dagurinn endaði svo með rosalegri Kosningarvöku í herbergi 103 þar sem var boðið upp á drykki og snakk.
Ferðasaga #1
Dagur 1
Ferðin byrjaði á flugi til Düsseldorf, þar tók við langt ferðalag og hvíldin nauðsynleg. Þegar lent var í Düsseldorf tók Gunnar Steinn og liðsfélagi hans Magnus við okkur og ferðalagið hélt áfram til Gummersbach.
Við komum að hótelinu klukkan 8:30 að staðaltíma en herbergin voru ekki tilbúin fyrr en 10 – 10:30 svo Gunnar Steinn sýndi okkur bæinn og fór með okkur á skemmtilegan veitingarstað.
Þegar herbergin voru tilbúin komum við okkur fyrir og hvíldum okkur eftir strembið ferðalag.
Eftir góða hvíld tóku þeir sem þurftu að taka próf prófin sín og restin fór að rolta í góður veðri niður í bæ að skoða.
Klukkan 18:30 tók svo við skemmtileg æfing í gömlu Gummersbach höllinni.
Eftir æfingu sýndi Gunnar Steinn okkur flottan Ítalskan stað rétt hjá hótelinu.
Það var komin ró um 23:00.
Dagur 2
Í dag tókum við góða morgunstyrktaræfingu í Schwalbe arena og gekk það mjög vel. Eftir hana var það heit sturta og smá matur á hótelinu og svo beint að horfa á Gummersbach æfa í sömu höll. Höllin var mjög flott og mjög gaman að horfa á þessa reyndu menn æfa.
Við tók æfing með Gummersbach akademíunni og var það mjög skemmtileg og góð æfing.
Við fórum aftur á sama Ítalska stað í kvöldmat en þeir sem vildu ekki borða þar máttu fara eitthvert annað t.d. fóru sumir á McDonald’s og kebab.
Eftir kvöldmat kom Kiel og allir urðu mjög spenntir, seinna um kvöldið spjölluðu sumir við Aron og hina leikmennina.
Eftir allt gamanið var komin ró kl 23:00.
Landsliðsstyrkur Afreksíþróttasviðs veittur í annað sinn!
Nú er vorönninni lokið og margt jákvætt sem áunnist hefur á þessari önn. Við eigum 10 einstaklinga sem fóru erlendis í keppnisferð með landsliðum sínum á þessari önn og hljóta þar af leiðandi landsliðsstyrkinn okkar. Það er bæting frá því í fyrra og vonandi heldur þessi þróun áfram.
Styrkurinn var veittur í 2. sinn þann 30. apríl og hlaut hver og einn nemandi 25.000 kr.
Hér að neðan má sjá hópinn sem fékk viðurkenninguna ásamt Inga Boga aðstoðarskólameistara og Sveini Þorgeirssyni verkefnisstjóra afreksíþróttasviðs.

Íshokkí: Elvar Snær Ólafsson, Edmunds Induss og Gabriel Camilo kepptu fyrir U18 í 3. deild A í Tævan nýverið. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu sína deild. Liðinu var stjórnað af Vilhelm Má Bjarnasyni, þjálfara á afreksíþróttasviði.
Handbolti: Andrea Jacobsen og Helena Ósk Kristjánsdóttir voru valdar í U17 ára landslið kvenna sem tók þátt í undankeppni EM í Færeyjum. Liðið komst því miður ekki áfram. Thea Imani Sturludóttir og Hulda Dagsdóttir voru valdar í U19 og tóku þátt í undankeppni EM í Makedóníu í apríl, liðið komst því miður ekki áfram. Kristján Örn Kristjánsson var valinn í æfingaferð til Þýskalands með U19 ára liðinu og skoraði 21 mark í 5 leikjum.
Fótbolti: Hulda Hrund Arnarsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir fóru til Frakklands og tóku þátt í undankeppni EM með U19 ára landsliði kvenna.
með þökk fyrir veturinn og gangi ykkur vel í keppni og æfingum í sumar!
Sveinn og þjálfarar afreksíþróttasviðs
Afreksíþróttasvið í golfferð til Portúgal
Góð ferð íshokkístrákanna með U18 til Tævan
Fyrir páska fóru þrír nemendur af afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla í U18 landsliðferð í íshokkí til Tævan, þar sem keppt var í 3 deild riðli A. Leikmennirnir eru Edmunds Induss, Gabríel Camillo Gunnlaugsson og Elvar Snær Ólafsson ásamt Vilhelm Má Bjarnasyni þjálfara U18 einnig þjálfari íshokkísviðsins. Íslenska landsliðið vann alla sína leiki og komst þar af leiðandi upp um deild. Edmunds Induss var valin besti maður leiks Íslands á móti Suður Afríku og Elvar Snær Ólafsson var valinn besti maður leiksins á móti Tævan auk þess að vera valinn besti maður Íslenska landsliðsins á mótinu og besti sóknarmaður mótsins. Við óskum strákunum og þjálfara þeirra til hamingju með þennan árangur. Þetta er frábær árangru hjá okkar strákum sem ætla sér langt í framtíðinni.
Hér að neðan má sjá myndir frá ferðinni til Tævan.
Kynningarfundur fyrir alla áhugasama!
Frábært nýtt kynningarvídeó fyrir afreksíþróttasvið!
Þetta vídeó er unnið af Aroni Gauta Sigurðarsyni, nemanda í margmiðlunarbraut Borgarholtsskóla. Sjón er sögu ríkari!





















