Það var mikil jákvæð spenna í loftinu í gær þegar búningarnir voru afhentir með nýju merki skólans. Nemendur fengu þar utanyfirtreyju, boli, stuttbuxur og sokka. Fyrsta árið fékk svo töskur, annað ári nuddrúllur og þriðja árið jafnvægispúða líkt og venjan er. Á öllum æfingum eftir þetta eiga nemendur að klæðast þessum fatnaði svo þar verður mikill og góður heildarbragur á hópnum eftir þetta.
Við sama tækifæri var handsalaður samningur við Styrk ehf sjúkraþjálfunarstöð uppi á Höfða. Í gegnum Styrk fá nemendur sviðsins frábæran aðgang að tímum í sjúkraþjálfun hjá Valgerði Tryggvadóttur sem starfar hjá Styrk, og vinnur einnig hjá okkur á afreksíþróttasviðinu við kennslu.
Mynd af Ársæli skólameistara og Auði frá Styrk handsala samninginn. Nánar má lesa um samstarfið hér á síðu sviðsins.
Það var góð heimsókn sem drengirnir í golfinu fengu í vikunni þegar afreksstjóri GSÍ Jussi Pitkänen kom við í Korpunni. Þar lagði hann inn nokkur góð ráð fyrir nemendurna og ræddi við þá um margt er tengist því að ná árangri í golfíþróttinni. Hér er svo mynd af hópnum við tilefnið!
Óskum drengjunum góðs gengis á æfingum í vetur og þökkum Jussi fyrir komuna!
Fyrsta ferðin er hafin í samstarfi VOSS skólans og Borgarholtsskóla. Verkefnið fékk styrk frá Nordplus og munum við því fá heimsókn í mars nk. frá þeim. Verkefnið er til 2ja ára og mun því annar hópur frá Borgarholtsskóla fara á næsta ári til VOSS.
Hér er ferðasaga frá 1. degi frá þeim Viktori og Valgeiri
Jæja, þá hefst ferðalagið sem við öll höfum beðið eftir. Við ætlum að segja ykkur aðeins frá því hvernig okkar fyrsti dagur var. Þetta byrjaði allt á því að rútubílstjórinn lenti í Breiðholtinu en ekki á flugvellinum. Sem betur fer náðum við að breyta tveimur flugum yfir í eitt. Flogið var beint til Bergen og þaðan keyrt í rúmlega eina og hálfa klukkustund til Voss þar sem við dveljum yfir vikuna. Hótelið er sæmilegt, fínn matur, lélegt klósett, og góð rúm. Við fengum hakk og spagetti í kvöldmat fyrsta daginn sem var upp á 10. Eftir mat skelltum við okkur í Pool og Ping Pong. Eftir það fórum við svo að íhuga að svefninum um klukkan 10:30. Mjög skemmtilegur dagur að baki og allir hressir.
Hér má sjá hvar VOSS er staðsett á landakorti 🙂
með nemendum í för eru þeir Gunnar Már og Sigurður Þórir
Bréf til umsækjenda á afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla vorið 2018
Kæri umsækjandi,
Um leið og við þökkum þér fyrir sýndan áhuga á afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla viljum við benda þér á að það er afar mikilvægt að ganga frá umsókn á sviðið SKRIFLEGA samhliða rafrænni umsókn. Sá hluti snýr að íþróttalegum bakgrunni þínum. Hafir þú þegar gengið frá þessum hluta þökkum við þér kærlega fyrir.
Biðjum við þig að fylla út umsóknareyðublað sog skila á skrifstofur skólans á skrifstofutíma eða á sveinn@bhs.is fyrir 12. júní nk. Eyðublaðið má nálgast hér: Umsokn 2018 afrekssvid
Í því felst að fylla út meðfylgjandi eyðublað og skila inn meðmælum frá þjálfara sem hefur starfað með þér á undanförnum misserum.
Við minnum á að almennur umsóknarfresturinn er til 8. júní nk. og niðurstöðu er að vænta um viku síðar. Ef einhverjar spurningar vakna bendum við á vefsíðu sviðsins (http://afrek.bhs.is/) þar sem ýmsar upplýsingar er að finna. Einnig má beina fyrirspurnum til sviðsstjóra, tölvupóstfang sveinn@bhs.is.
Landsliðsstyrkur afreksíþróttasviðs var veittur nú fyrir helgi og þáðu 17 nemendur styrk. Eins og svo oft áður eru verkefnin fjölbreytt eins og greinarnar sem nemendur koma úr og hér er stutt samantekt.
Arnór Snær, Arnar Máni, Daníel Freyr, Viktor Gísli og Hafsteinn Óli kepptu með U18 ára handboltalandsliðinu og sigruðu Sparkassen mótið í Þýskalandi.
Bergrún Ósk keppti fyrir hönd Íþróttafélags fatlaðra á Ítalíu í 100, 200 og 400m hlaupi ásamt langstökki.
Brynjólfur Óli var á Tenerife með sundlandsliðinu í verkefni sem er liður í undirbúningi fyrir Summer Youth Olympics í október í Argentínu.
Daníel Sverrir Guðbjörnsson ásamt dansfélaga sínum urðu Austur-Bandaríkjameistarar 2018 og eru sem stendur í 13. sæti í Evrópu yfir sterkustu pörin.
Jóhann Árni og Valgeir Lunddal kepptu í milliriðli fyrir undankeppni Evrópumóts U17 í fótbolta. Þar spiluðu þeir við stórþjóðir í fótboltanum, Holland, Ítalíu og Tyrkland, en máttu sætta sig við tap að þessu sinni.
Viktor Andri og Ómar Castaldo tóku þátt í æfingamóti á vegum U17 ára landsliðsins í fótbolta í Hvíta-Rússlandi þar sem 4 sigrar unnust og 1 tap var staðreyndin.
Ellert Kristján og Magnús Gauti eru úti í Grænlandi þegar þessi frétt er skrifuð að keppa í borðtennis fyrir Íslands hönd.
Jón Albert keppti í Króatíu með U18 ára landsliði Íslands í íshokkí. Leikið var á Heimsmeistaramóti 2. deild B og töpuðu Jón og félagar öllum sínum leikjum því miður.
Steindór Máni keppti með U20 í keilu í Katar í febrúar og Evrópumóti unglinga í Danmörku þar sem Steindór byrjaði mótið afar vel og endaði í 26. sæti, og rétt missti af þátttökurétt í Masternum sem 24. efstu sætin gáfu.
Frá 8. afhendinglandsliðsstyrks í Borgarholtsskóla 17. maí 2018. Efri röð frá vinstri, Daníel Sverrir, Viktor Gísli, Goði Ingvar, Ómar Castaldo, Arnór Snær, Daníel Freyr, Arnar Máni, Hafsteinn Óli, Viktor Andri og aðstoðarskólameistari Ásta Laufey. Neðri röð frá vinstri; Valgeir Lunddal, Jóhann Árni, Magnús Gauti, Ellert Kristján, Steindór Máni, Brynjólfur Óli, Jón Albert og Sveinn verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs. Á myndina vantar Bergrúnu Ósk Aðalsteinsdóttur.
Svona lítur viðurkenningaskjalið út sem nemendur fengu. Til hamingju aftur öll!
Í þessari viku fluttu nemendur á 3ja ári hjá okkur lokaverkefni sitt á afreksíþróttasviðinu. Eins og sjá má voru viðfangsefnin af ýmsum og áhugaverðum toga. Þó tengdist þetta allt heimi íþróttanna og íþróttamannsins. Virkilega áhugaverðir fyrirlestrar og pælingar.
Hluti af þeim lokaverkefnum sem kynnt voru á mánudaginn sl.
Hér hafið þið síðasta fréttabréf afreksíþróttasviðs þetta skólaárið. Síðustu tveimur fréttabréfum hefur verið skeytt saman þar sem verkefnisstjóri var í orlofi á þeim tíma sem síðasta bréf átti að koma út.
Við viljum þakka samfylgdina og lesturinn á þessu skólaári og hlökkum til að senda ykkur glóðvolgar fréttir af starfinu næsta haust.
Vorið er komið og nemendur löngu farnir að huga að næstu skrefum varðandi umsóknir í framhaldsskóla. Hér eru skrefin sem þarf að taka til að sækja um hjá okkur. Í dag er í gangi forval og hægt er að velja okkur þar sérstaklega undir bóknámi Borgarholtsskóla.
Til að sækja um í skólann skulu nemendur sækja um á www.menntagatt.is og skila inn á skrifstofu skólans (á skrifstofutíma) umsóknareyðublaði OG meðmælabréfi. Einnig er hægt að skanna og senda slíkt bréf í tölvuvpósti beint á sveinn@bhs.is.